1:00 PM - 2:00 PM
Senior Product Manager Interview
Sarah Jenkins

Alcoa
·3 days agoAlcoa
·3 days agoLocation
onsite, Reydarfjordur, 7, Iceland
Commitment
Full Time
Level
Senior (5+ years)
Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Við leitum að hæfileikaríkum upplýsingatæknisérfræðingi í iðnstýringum til starfa í framleiðsluþróunar- og upplýsingatækniteymi Alcoa Fjarðaáls. Í teyminu vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga í straumlínustjórnun, verkefnastjórnun og upplýsingatækni að stöðugri þróun á framleiðslu fyrirtækisins.
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com.
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember