Alcoa

Alcoa

·15 days ago

Spennandi sumarstörf 2027 / exciting summer jobs 2027

Apply now

Location

onsite, Reydarfjordur, 7, Iceland

Commitment

Full Time

Level

Junior (<2 years)

Required skills

TeamworkCommunicationSafety awarenessReliabilityAdaptability

Job Description

Mótaðu framtíðina

Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum til þess að ganga til liðs við okkur í sumar. Í boði eru fjölbreytt og spennandi störf á góðum vinnustað.

Í lok sumars er möguleiki á áframhaldandi starfi, eða hlutastarfi með námi. Unnið er á vöktum í vaktakerfi sem býður upp á hæfilega langar vaktir og gott frí á milli.

Komdu og vertu hluti af okkar frábæra teymi í sumar!

Af hverju Alcoa Fjarðaál?

  • Tækifæri til að vinna í einu tæknilega fullkomnasta álveri í heiminum
  • Góð laun og fríðindi
  • Vaktakerfi sem veitir frelsi til að sinna áhugamálum
  • Mikil tækifæri til að þróa hæfileika þína og vaxa í starfi
  • Vingjarnlegt og stuðningsríkt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að halda áfram að vinna eftir sumarið og yfir hátíðarnar
  • Fríar rútuferðir til og frá vinnu
  • Frítt mötuneyti

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
  • Vera með hreint sakavottorð
  • Bílpróf er skilyrði
  • Tala og skilja íslensku og/eða ensku

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki

Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir í tölvupósti anna.kristmundsdottir@alcoa.com

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um á Alcoa.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. maí.

Ready to join the team?

Apply now