1:00 PM - 2:00 PM
Senior Product Manager Interview
Sarah Jenkins

Inchcape
·18 days agoInchcape
·18 days agoLocation
onsite, Reykjavik, 1, Iceland
Commitment
Full Time
Level
Junior (<2 years)
Langar þig að þróast í starfi, byggja upp þekkingu og reynslu og vera hluti af öflugu og góðu teymi?
Hjá Inchcape á Íslandi verður þú hluti af alþjóðlegu fyrirtæki. Við vinnum með nokkur af fremstu vörumerkjum í bílaiðnaðinum og leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi aðila til að sinna starfi söluráðgjafa hjá Bílaumboðinu Unu sem staðsett er á Vínlandsheiði 6-8. Una er bílaumboð sem selur og þjónustar bíla frá kínverska bílaframleiðandanum XPENG. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi starfsumhverfi.
Ekki hika við að sækja um. Hljómar þetta eins og starf fyrir þig? Sendu okkur endilega umsókn, jafnvel þótt þú uppfyllir ekki öll skilirðin sem við leitum að. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn í þetta starf eða annað tækifæri innan Inchcape Ísland.
Tækifæri fyrir öll. Við viljum skapa fjölbreyttan vinnustað þar sem ólík reynsla, bakgrunnur og sjónarmið fá að njóta sín. Þess vegna hvetjum við öll sem hafa áhuga á starfinu til að sækja um.
Inchcape Ísland býður upp á. Hjá Inchcape horfum við til framtíðar og viljum hafa okkar fólk með í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á gott samstarf, vellíðan og vinnuumhverfi þar sem ólíkt fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast.
Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, byggja upp þekkingu og þróast í starfi bæði hér heima og sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki.
Una er bílaumboð sem selur og þjónustar bíla frá kínverska bílaframleiðandanum XPENG. Bílaumboðið Una er dótturfélag Inchcape á Íslandi ásamt Landfara, Dekkjahöllinni og Öskju. Nánari upplýsingar um Unu má finna á Bílaumboðið Una.
Inchcape er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í dreifingu og sölu bifreiða og starfar á 39 mörkuðum um allan heim. Við vinnum með mörgum af stærstu vörumerkjum bílaiðnaðarins og leggjum áherslu á að þróa lausnir sem styðja við sjálfbærari samgöngur til framtíðar.
Hjá Inchcape starfa yfir 17.000 manns um allan heim. Við leggjum áherslu á fjölbreytileika, gott samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólk fær að njóta sín, með það að markmiði að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.
Inchcape er öflugt og vaxandi alþjóðlegt fyrirtæki sem tekur virkan þátt í þeirri þróun sem á sér stað í bílaiðnaðinum. Nánari upplýsingar um Inchcape má finna á www.inchcape.com.
Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Jón Baldursson Sölustjóri hjá Bílaumboðinu Unu kjb@bilaumbodiduna.is